Barnamenningarhátíð - Sögur 2018
Bækurnar Amma best og Kiddi klaufi hlutu Bókaverðlaun barnanna, Blái hnötturinn var valin besta leiksýningin og B.O.B.A. var valið lag ársins á verðlaunahátíðinni SÖGUM.
SÖGUR fór fram í fyrsta sinn í Eldborgarsal Hörpu en um 2.000 börn á aldrinum 6-12 ára höfðu kosið það besta á sviði tónlistar, bókmennta, sjónvarps og leikhúss, auk þess sem skapandi börn voru verðlaunuð.
Amma best eftir Gunnar Helgason hlaut Bókaverðlaun barnanna sem besta frumsamda bókin og Dagbók Kidda klaufa – furðulegt ferðalag eftir Jeff Kinney í þýðingu Helga Jónssonar var kosin besta þýdda bókin. Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi, hlaut Guðrún Helgadóttir fyrir æviframlag sitt í þágu barnamenningar á Íslandi.
Smásaga ársins
Bókavandræði – Árni Hrafn Hallsson
Bella og dularfulla mamman – Eyvör Stella Þeba Guðmundsdóttir
Leikrit ársins
Friðþjófur á tímaflakki – Sunna Stella Stefánsdóttir
Tölvuvírusinn – Iðunn Ólöf Berndsen
Útvarpsleikrit ársins
Stelpan sem læstist í skápnum – Silvía Lind Tórshamar
Stuttmynd ársins
Svandís og Ísak – Svandís Huld Bjarnadóttir, Ísak Helgi Jensson og Brynhildur Þöll Bjarnadóttir
Stuttmyndahandrit ársins
Þrjár óskir – Sara Einarsdóttir og Sóldís Perla Marteinsdóttir
Bókaverðlaun barnanna – Besta íslenska bókin
Amma best – Gunnar Helgason
Bókaverðlaun barnanna – Besta þýdda bókin
Dagbók Kidda klaufa – furðulegt ferðalag, Höfundur Jeff Kinney, þýð.: Helgi Jónsson.
Tónlistarflytjandi ársins
Daði Freyr og Gagnamagnið
Lag ársins
B.O.B.A. – JóiPé og Króli
Lagatexti ársins
Hvað með það? – Daði Freyr og Gagnamagnið
Leikið efni ársins
Loforð
Barnasjónvarpsþáttur ársins
Skólahreysti
Fjölskyldusjónvarpsþáttur ársins
Fjörskyldan
Leiksýning ársins
Blái hnötturinn
Leikari/leikkona ársins
Börnin í Bláa hnettinum
Sjónvarpsstjarna ársins
Jón Jónsson
Sögusteinninn
Guðrún Helgadóttir
Hvatningarverðlaun fyrir smásögur:
Gimsteinninn – Jakobína Lóa Sverrisdóttir og Vigdís Magnúsdóttir
Geimveran og vinir hennar – Sara Maren Jakobsdóttir
Hættuspil – Sölvi Martinsson Kollmar
Hliðarheimur ímyndunaraflsins – Kristján Nói Kristjánsson
Rúv1