Finnst þér gaman að ...
- Ragnhildur Birgisdóttir
- Nov 21, 2017
- 1 min read
Handritakeppni fyrir börn 6 til 12 ára

Menntamálastofnun, KrakkaRÚV og SÍUNG munu í vetur standa fyrir ævintýralegu ferðalagi um sagnaheim sex til 12 ára barna. Verkefnið kallast Sögur og markmið þess er að auka lestur og menningarlæsi barna, hvetja börn til sköpunar og styðja íslenska barnamenningu.
Sagt er frá verkefninu á vef Menntamálastofnunar. Þar segir: „Ferðalaginu lýkur með verðlaunahátíðinni SÖGUR – verðlaunahátíð barnanna, í beinni útsendingu á RÚV í lok apríl 2018. Á hátíðinni verða veitt verðlaun fyrir útgefið efni og frumsamið efni frá börnum í þremur flokkum. Þeir eru bókmenntir, leikið efni og efni fyrir sjónvarp, og tónlist."
Krakka RÚV mun framleiða efni sem tengist verkefninu og verða nokkur valin handrit eftir börn unnin í stuttmyndir.
Frétt á vef Menntamálstofnunar.
Verkefnið á KrakkaRÚV.
Viðfangsefni: Sköpun, Handrit, Sögur, KrakkaRÚV
http://skolavardan.is/stutt/Handritakeppni-fyrir-born-6-til-12-ara/
Comentarios