top of page

Bókagjöf: Undur

Skólanum barst bekkjarsett af bókinni Undur frá foreldri skólans. Takk fyrir okkur.

Oggi er tíu ára og gerir það sem venjulegir tíu ára strákar gera: hann hámar í sig ís, dáir Stjörnustríð og tölvuleiki, honum finnst hann vera venjulegur – inni í sér. Og hann langar til að vera venjulegur strákur. Að allir hætti að glápa á hann eða hlaupa öskrandi burt.Mamma hans hefur alltaf kennt honum heima en nú á hann að fara í alvöruskóla í fyrsta skipti og tilhugsunin skelfir hann. Getur hann sýnt bekkjarsystkinum sínum fram á að undir afskræmdu yfirborðinu er hann alveg eins og þau?Undur er fyndin, mannleg, átakanleg og ótrúlega raunsönn frásögn af vináttu, hugrekki og þrautseigju, sögð með samspili margra radda. Þessi frábæra frumraun R.J. Palacio hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og komst í efsta sæti metsölulista New York Times. Ólöf Eldjárn þýddi.

https://www.forlagid.is/vara/undur/

- „… vekur upp góðar og gildar spurningar í huga manns … Á heildina litið er Undur grjótmögnuð saga um fegurð fjölbreytileikans og er ein þeirra bóka sem skilja mikið eftir sig í kolli lesenda.“Malín Brand/Morgunblaðið - „Þetta er mannbætandi og yndisleg bók um gleði og sorgir og ekki síst mikilvægi vináttunnar.“Guðríður Haraldsdóttir/Vikan - „Falleg margradda þroskasaga sem lesendur á öllum aldri ættu að hafa gaman af. Einföld en ljómandi skemmtileg bók. Undur tekst við grimmd manneskjunnar og fordóma en hún lofsyngur líka kærleikann og umburðarlyndið margbreytilegum heimi.“Magnús Guðmundsson/Fréttablaðið  - „Undraverð … Palacio hefur skrifað snilldarlega og spennandi bók sem er uppfull af persónum sem maður getur ekki annað en haldið með.“Entertainment Weekly

Featured Review
Tag Cloud
No tags yet.
bottom of page